4.10.2008 | 13:22
illa, Bubbi og spákonan
Það er kannski tími til kominn að blogga eitthvað. einhvernvegin hefur verið svo brjálæðislega mikið að gera að illan hefur varla annað gert en að snúast í kring um sjálfa sig.
Allur frítíminn sem ég var búin að venjast handan atlantshafsins virðist nánst horfinn, enda reynir maður að umgangast fjölskylduna eins mikið og hægt er. Bara gaman :)
Það er allt orfið hvítt hérna norðan holtavörðuheiðarinnar, og illan ætlar að skella sér á stóðréttaballið í Víðidalnum á eftir. Enda mamma og Stebbi þar á ferð.
Reyndar er verið að sýna leikrit um hana Þórdísi spákonu heima á ströndinni í kvöld svo ég renni þar við og kíki í kjötsúpu og sýningu áður en ég held lengra vestur á vit skemmtilegheitanna.
óska öllur góðrar helgar og megi þið skemmta ykkur eins mikið og ég ætla mér :)
skelli inn einum gömlum og góðum Bubba til að fá smá stemmingu, stendur alltaf fyrir sínu
Athugasemdir
Gaman að sjá Illuna aftur...
Gulli litli, 4.10.2008 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.